Undanfarna mánuði höfum við unnið að undibúningi framkvæmda á Siglufirði fyrir sumarið 2026, en fyrirliggjandi var að bjóða öllum íbúum með fasta búsetu að tengjast ljósleiðara Tengis. Verkefnið er unnið í samvinnu við Fjallabyggð og stóð til að samnýttar yrðu framkvæmdir aðila til að hægt yrði að ljúka ljósleiðaravæðingu Siglufjarðar fyrir árslok 2026.
Sumarið 2025 vann Tengir að lagningu ljósleiðara á Siglufirði jafnt og þétt og gátum við boðið fjölmörgum nýjum notendum að færa sig yfir á fjarskiptanet framtíðarinnar!
Í ljósi þess að fyrirhugað framkvæmdasvæði fyrir árið 2026 var stórt, hófum við undirbúningsvinnu um leið og framkvæmdatímabili síðasta árs lauk og þegar farið að kanna með þátttöku á næstu framkvæmdasvæðum.
Þátttaka í verkefninu er reyndist mjög breytileg eftir framkvæmdasvæðum og í ljósi þess að Fjallabyggð mun ekki taka að sér hluta framkvæmda eins og til stóð við gerð samnings, verður áhersla lögð á að ljúka framkvæmdum þar sem þátttaka íbúa er mest.
Við hvetjum íbúa sem ekki hafa tekið afstöðu til þátttöku, til að gera það hið allra fyrsta og heyra í sölufulltrúum okkar í síma 4600460 eða sýna áhuga hér á heimasíðunni og við höfum samband!
Hér meðfylgjandi má sjá kort af staðfestum framkvæmdasvæðum og eins framkvæmdasvæðum sem eru enn til skoðunar og verða staðfest ef þátttaka eykst innan þeirra.

25.3.2026