Tengir er nú að ljúka umfangsmiklu verkefni við uppbyggingu ljósleiðara á Þórshöfn sem hófst árið 2024. Á þessum tíma hefur ljósleiðari verið lagður inn í rúmlega 200 fasteignir – og viðtökurnar hafa verið frábærar. Íbúar og fyrirtæki hafa tekið verkefninu vel og þátttakan verið góð, sem sýnir vel þörfina fyrir hraðari og áreiðanlegri fjarskiptatengingar.
Lokaspretturinn er framunda, en nú er tengivinna hafin og á næstu dögum geta notendur pantað þjónustu um ljósleiðara Tengis. Við viljum hvetja þá sem eru enn á kopar að taka skrefið yfir – nýta tækifærið þannig að við getum tengt alla sem þess óska þegar tæknimenn mæta á svæðið á komandi vikum. Hægt er að velja um internetþjónustu frá Hringdu, NOVA, Símanum og Sýn.
Uppbyggingin á Þórshöfn er hluti af stærri mynd á svæðinu, en árið 2019 lagði Tengir ljósleiðara frá Finnafirði og inn í þéttbýli Bakkafjarðar, í heild yfir 50 fasteignir. Árið 2024 keypti Tengir síðan ljósleiðarakerfi Fjarskiptafélags Svalbarðshrepps, sem teygir anga sína um dreifbýlið frá Raufarhöfn að Eiði á Langanesi og veitir þjónustu til rúmlega 60 notenda.
Næsta skref er að tengja fyrirliggjandi innviði enn betur saman, með lagningu á nýjum ljósleiðara yfir Brekknaheiði á næstu misserum. Með því verður til heildstætt fjarskiptanet í Langanesbyggð sem mun þjóna þörfum íbúa og atvinnulífs um ókomin ár. Það má því með sanni segja að fjarskiptainnviðir í Langanesbyggð séu að verða framtíðarheldir.
11.6.2026