Ljósleiðaravæðing Siglufjarðar í fullum gangi

Lagning ljósleiðara á Siglufirði í sumar gekk afar vel og þátttaka íbúa og fasteignaeigenda var mjög góð. Alls var ljósleiðari lagður í um 150 eignir í bænum á framkvæmdatímanum, sem markar stórt skref í áframhaldandi uppbyggingu öflugra fjarskiptainnviða á Siglufirði.

Nú þegar framkvæmdum sjálfum er lokið stendur yfir vinna við að tengja þau hús sem tóku þátt í verkefninu, í gegnum þær þjónustuveitur sem viðskiptavinir hafa valið sér. Gengur sú vinna vel og búist við að henni ljúki á allra næstu vikum þannig að íbúar og fyrirtæki geti notið þeirra möguleika sem háhraða ljósleiðaratenging býður upp á.

Við hjá Tengir viljum færa öllum þeim sem tóku þátt í verkefninu bestu þakkir fyrir góðar viðtökur og ánægjulegt samstarf. Árangurinn sýnir skýrt þann áhuga sem er á öruggum og hraðvirkum fjarskiptatengingum sem standast kröfur framtíðarinnar.

 

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að tengjast ljósleiðara árið 2027 að hafa samband við okkur!

Með því er hægt að skrá áhuga og fá upplýsingar um fyrirhugaða uppbyggingu og tengimöguleika á viðkomandi svæði.

Nánari upplýsingar má fá hjá sölufulltrúum okkar í síma 46 00 470 / 46 00 414 og með fyrirspurn á www.tengir.is.

22.10.2026